<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, desember 11, 2003

Sölumaður Dauðans!!!


Hehe... seldi DVD-spilara fyrir Bónus í dag... bara ánægður með það. Við vorum eitthvað að labba þarna framhjá spilurunum, ég og Þóra sys... í verslunarævintýri... og þá sé ég að mæðgur eru þarna eitthvað að specca spilarana. Dóttirin sem er kannski á svipuðum aldri og ég „Hey, mamma... sjáðu verðið á þessu! DVD-spilari á sexþúsundogfimmundruðkall!“ Mamma hennar er eitthvað að fara að malda í mófann... þá segir Þóra „Hey, Óli! Sexþúsundogfimmundruðkall fyrir svona spilara... ætti ég að fá mér?“ Þá segi ég (og fylgisti með þessu):
„Já, ég myndi bara fá mér svona...“ Mæðgurnar hlusta ákaft og eru með eyrun sperrt sé ég... „Þú sérð það að hann kostar ekki nema sexússdogfimmundrugall og svo þegar að hann er orðinn eitthvað lélegur þá hendiru honum bara og færð þér nýjann!“ Þóra er nú eitthvað að spá í hlutunum og ég sé að mæðgurnar eru orðnar svoldið heitar fyrir spilaranum... „Þú sérð það að hann spilar Mp3, vídejósídí, súbervídejósídí og guð veit hvað.“ „Er það svona skrifaðir diskar?“ spyr mamman mig og ég segi „Já, þú sérð það að ég á þrjátíuússgrónaspilara og hann er aðeins farinn að 'lagga' núna þannig að þegar ég fer með hann í viðgerð þá kostar viðgerðin kannski sexússdofimmundrugall... Í staðinn fyrir að henda honum bara og kaupa mér nýjann.“

Ðett vos oll ðe leidís vontet tú nó... svo að ánægðar og í jólafílíng skelltu þær spilara í, annars þéttu körfuna sína, og röltu áleiðis út í ódýranærbuxnageirann, glaðar eftir viðskipti dagsins...

Mér fannst hún nú frekar huggó þessi gella þarna þannig að ég var að spá í hvort ég ættiggi að segja við þær „Góða skemmtun“ á leiðinni út, ja bara svona eins og góðum sölumanni sæmir... þá áttaði ég mig á því að ég var ekki með gel í hárinu og það hefði bara komið út sem „Gleðilega páska“ eða „Mér finnst gaman að dansa“ þannig að ég sleppti því bara... :(

Þoliggjað vera fórnarlamb tísgunnar skiluru???
GEGT ÝKT

Jói... í Bónus... ef þig vantar sölumann sem er til í að leggja allt í sölurnar (hehe sniðugur?) þá er ég rétti maðurinn fyrir þig... Ég er þessi týpa sem gæti höndlað það að vera á sjötiláttamiljónagrónajeppaá48tommum að versla í Bónus... Tjekk mí át!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?