<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, júní 30, 2005

SEEEEJEEEETTTTURINN!!! 

Jæja ágætu áskrifendur... nú styttist í það! Klukkan er 11:27 skv. Greenwichmeantime og ég búinn að fá mér einn, tvö öllara... svona í morgunsárið. Klukkan 12:30 ætla ég að labba út að BSÍ til þess að taka rútuna út að Kefflavikk erport.
Hófí ætlar að taka á móti mér á neðri hæðinni þar sem ég kem til með að hanga þangað til að ég flýg, klukkan 15:30 til Kópenheigen á vit ævintýranna.

Heimir Berg hringdi í gær og mér heyrðist á honum að þetta væri lífið... ég reyndar þekki það af eigin raun...
Ég var að komast að því, mér til skelfingar, að ég næ ekki Velvet Revolver vegna þess að þeir byrja að spila klukkan 20 að staðartíma og ég lendi ekki fyrr en 20:30 og þá á ég eftir að fara til Þórhildar, vinkonu Helgu sys þar sem ég mun gista (að einhverju leyti) þessa helgi.

Ég ætla svo að hitta Óla síníjor, frænda, sun, mán eða þri, eða bara alla þessa daga og kick it með honum. Annars verður þetta bara tsjill og næserí!

Ég hugsa að ég fari ekki út að Roskilde í kvöld þar sem að ég kem svo seint en maður veit aldrei... kannski verður maður í stuði. Ég ætla að senda Heimi sms þegar ég kem út og ef það verður eitthvað kreisíbits-stuð hjá þeim þá treysti ég á Guð og kæfuna og skelli mér útettir... annars verður nú ágætt að leggja sig eftir næturvaktina í nótt... ég er búinn að vaka síðan 3 í gær!

Ég fór nefnilega tvisvar til tannsa í gær og hún festi loksins krónuna í kjammann en ég klikkaði rosalega á því að taka ekki myndavélina með mér til tannsa til þess að festa þessa snilld á filmu þegar sést í beran stubbinn og hvorki bráðabirðarkrónan né nýja fallega krónan til staðar. Eins og ótíndur glæpamaður... ég er að segj'ykkur'ða.

Jæja ppl... wish me good luck og ég sendi sms af og til... ekki hætta að kíkjá bloggið.

Lúv og lifi rokkið!!!

Lag dagsins er Don't look back in anger með David Bowie.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?