<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, nóvember 10, 2006

Ef það er eitthvað sem ég er ósáttur við... 

þá er sú ákvörðun Skjás Eins að hætta með Dr. Phil. Ég er reyndar meira ósáttur við að hafa tekið inn Rachael Ray þættina sem mér finnst vera í svipuðum klassa og Sigtið!
Ég kemst ekki hjá því að hugsa um brandarann um froskinn með stóra munninn þegar ég sé þessa manneskju... „Hvað finnst þér best að borða?!?“ Hef reyndar ekki haft úthald í að horfa á heilan þátt með henni því mér finnst skemmtilegra að hoppa framan af svölunum mínum á þriðju hæð á fír-tommu-naglabrettið sem ég bjó til og setti á jarðhæðina. Og til þess að sársaukinn sé varanlegur þá dreifði ég glerbrotum á milli naglanna og setti svo þykkt lag af grófu sjávarsalti ofaná.

Annars bara gott og ágætt... sem fyrr :)
Brjálað að gera í vinnunni og náminu, Hlynur kominn og sofnaður, Karen að vinna alla helgina...

Mér brá reyndar svolítið í dag þegar ég fór í hádegisspilerríið og dró upp Strattinn minn... fyrir ofan pickguardið voru nokkrar djúpar rispur! Get svosem sjálfur kennt mér um en ég kem ekki til með mæta með gítarana mína oftar... ekki nema ég spili bara sjálfur.

Ef einhver veit hvernig maður getur nálgast Dr. Phil þættina eins og þeir eru í dag þá má sá hinn sami/sama benda mér hvernig það er hægt. Hugsa að ég sé reyndar ekki að fara að kaupa mér disk og setja hann upp hérna á görðunum...
Hvet ykkur til að fylgja fordæmi mínu og senda bréf á Skjá Einn og kvarta undan þessum breytingum þar sem að skemmtana- og fræðslugildi Dr. Phil þáttanna eiga að vera nóg til þess að réttlæta kaupin á þáttunum (fyrir utan það að Skjár Einn hefur verið að sýna tveggja ára gamla seríu). Ef þið viljið leggja þessu verkefni mínu lið þá get ég sent ykkur bréfið sem ég sendi og þið forwardað því óbreyttu eða bætt við það eftir þörfum.

Lag dagsins í dag er Chop Suey með S.O.A.D.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?