<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, september 15, 2007

Ólafur... kéjémur... 

Tvisvar á stuttum tíma hefur Hlynur komist í fjölmiðlana... í fyrra skiptið í Skessuhornið og í það seinna í Kastljós (í gær). Það er nú kannski ekki frásögu færandi nema að hann er alltaf Ólafsson sem mér þykir frekar leitt... ég þarf greinilega að setjast niður með honum og kenna honum að bera nafnið mitt skýrt og skilmerkilega fram... svo að ég geti nú stoltur orðið aftur Óli í staðinn fyrir Ólafur. Þó svo að Óli sé í raun bara stytting á nafninu Ólafur þá heiti ég Óli, skírður þannig...
Hef reyndar ekki gengið svo langt að fá leiðréttingu á þessu ennþá... ég læt kannski Hlyn hafa samband við fjölmiðlana fyrir mig... svo ég virki ekki eins og einhver með áráttu-þráhyggju út af rangnefni :)

Hef það fínt annars...
13 dagar í að ég verði Johnny Depp!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?